Er Guð bara góður? Og hvernig vitum við það?
Einar Sigurbergur Arason og Halldór Lárusson reifa málin.
Þátturinn er framhald af 3. þætti.
March 7, 2022 • Einar Sigurbergur Arason, Halldór Lárusson
Samvinna eða fjandskapur. Hvað þarf til að starfa í einingu? Á alltaf að vera í einingu? Um hvað snýst þessi eining – eiga allir að dansa eins og einhver sjálfskipaður foringi? Eða er önnur leið heilbrigðari til að leysa ágreining?
Trúardeilur, eins og um hvaða trú sé nógu rétt eða hrein. Eiga svona deilur einhvern tíma rétt á sér? Eða eiga allir einfaldlega að vera umburðarlyndir, elska óvini sína og hætta öllu þrasi? Við skoðum sögu úr Biblíunni. Hvaða hópar eru nefndir í sögunni? Gengur þeim vel að lifa í friði? Eða sjáum við átök, og þá um hvað?