icon__search

5. Snýst trú um að hræða?

Snýst trúin um að stjórna fólki með ótta?

September 9, 2023 • Eric Guðmundsson, Einar Sigurbergur Arason

Snýst kristin trú um að stjórna fólki með ótta? Heimsendir er alveg að koma. Snúðu þér til Krists núna, annars gerist eitthvað slæmt. Er þetta kjarninn í kristindómnum?


Einar Sigurbergur Arason og Eric Guðmundsson ræða efnið.

12. Er eitthvað að marka Biblíuna?

November 11, 2023 • Einar Sigurbergur Arason, Guðmundur Karl Brynjarsson

Er eitthvað að marka Biblíuna? Eða er hún bara gömul og úrelt bók? Einar og Guðmundur Karl reifa málið.

11. Hvernig er hægt að starfa í einingu?

October 21, 2023 • Einar Sigurbergur Arason • John 15:1–9, Luke 5:7, Acts 15:1–20, John 17:21

Samvinna eða fjandskapur. Hvað þarf til að starfa í einingu? Á alltaf að vera í einingu? Um hvað snýst þessi eining – eiga allir að dansa eins og einhver sjálfskipaður foringi? Eða er önnur leið heilbrigðari til að leysa ágreining?

10. Trúardeilur – eins og hvaða trú sé rétt eða hrein

October 14, 2023 • Einar Sigurbergur Arason • John 4, Deuteronomy 6:4–5, 2 Kings 17, Matthew 28:19–20

Trúardeilur, eins og um hvaða trú sé nógu rétt eða hrein. Eiga svona deilur einhvern tíma rétt á sér? Eða eiga allir einfaldlega að vera umburðarlyndir, elska óvini sína og hætta öllu þrasi? Við skoðum sögu úr Biblíunni. Hvaða hópar eru nefndir í sögunni? Gengur þeim vel að lifa í friði? Eða sjáum við átök, og þá um hvað?