icon__search

Yoseph Haddad in Iceland

Yoseph Haddad

May 16, 2022 • Hafsteinn Einarsson

Yoseph Haddad has served in the Israeli Defense Forces. He’s also an Arab and a Christian. But why would an Arab volunteer to join the Israeli military? If Israel really is an apartheid state, like some people claim it to be, then why would Haddad be proud to defend it? Let´s allow Yoseph to explain his view.

Yoseph þjónaði í mörg ár í Ísraelska hernum. Hann er líka kristinn Arabi. Af hverju býður Arabi sig fram til þjónustu í Ísraelska hernum? Ef aðskilnaðarstefna er við líði í Ísrael, eins og sumir vilja halda fram, af hverju ætti Yoseph þá að vera stoltur af að verja landið? Hér vakna margar spurningar. Í viðtalinu sem Hafsteinn G. Einarsson tók við Yoseph, er ljósi varpað á þætti sem sjaldan eða aldrei eru ræddir í fjölmiðlum. Gefum Yoseph orðið.

More from Beint í Mark

Rauðu kvígurnar

September 22, 2022

Fyrir stuttu bárust þær fréttir frá Texas að bóndi nokkur hefði gefði rabbínum nokkrar rauðar kvígur. Og hvað skyldi vera svona merkilegt við það? Hefur gjöfin einhverja þýðingu fyrir Ísrael, endurbyggingu musterisins og tímatal lokatímanna? Við fáum biblíufræðinginn Snorra Óskarsson í heimsókn og hann ætlar að segja okkur meira um málið.

Vitnisburður Sólveigar Katrínar

August 19, 2022 • Sólveig Katrín Jónsdóttir

Í 27 ár var hún á leið uppljómunar og andlegar vakningar. Leið sem hún taldi vera hina réttu og sönnu. Í 27 ár var Sólveig Katrín Jónsdóttir á þessari braut. Lifði og hrærðist í þessum andlega heimi ásamt því að vera kennari í greininni. Kenndi sjamanisma og hélt gyðjuseremóníur. Efaðist ekki um að þetta allt væri frá Guði. En svo gerðist eitthvað í apríl 2021. Sólveig fékk snertingu frá Guði og eignaðist lifandi trú á almáttugan Guð. Sólveig kom til okkar og segir hér sögu sína í þessu viðtali. .

GO Movement

August 5, 2022 • Beat Baumann

Eitt merkasta trúboðsframtak í heiminum í dag er hreyfingin GO Movement. Alþjóðlegur stjórnandi hreyfingarinnar, Beat Baumann, var í heimsókn hér á landi í ágúst 2022 og tók þátt í morgunverðarfundi á vegum Lindarinnar. Hann sagði okkur magnaðar sögur um hvernig þúsundir manna hafa komist til lifandi trúar á Jesú Krist í gegnum verkefnið á heimsvísu. Hann hvatti okkur Íslendinga til að vera með og taka virkan þátt. Bauð fram aðstoð sína ásamt því að tengja okkur við aðila erlendis sem gætu komið okkur af stað. Beat settist við hljóðnemann og við tókum við hann stutt viðtal. Hugsjón GO Movement er að virkja kristna um heim allan til að bera reglulega vitni um trú sína – alveg þar til allir jarðarbúar hafa fengið tækifæri til að taka afstöðu til fagnaðarerindisins. Slagorðið er “Everyone can reach someone. Together we can reach the world." Meira um málið á http://gomovement.world Mikill áhugi er á að taka við keflinu hér á landi og nýta þennan slagkraft fyrir Ísland. Ef þú hefur áhuga á að vera með hafðu þá samband við Lindina í síma 567-1818 eða með tölvupósti á http://lindin@lindin.is