icon__search

Sálmar og bænalíf

Umsjón með þættinum hefur sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur á Akureyri. Guðmundur leiðir hlustendur inn í heim bænarinnar eins og Jesús bað og kenndi lærisveinum sínum að biðja. Lærisveinarnir sögðu eitt sinn við Jesú: Kenndu okkur að biðja? Bænabók Jesú voru Davíðssálmarnir þar sem við les

15. þáttur Kristur í Davíðssálmum

December 22, 2021

Hér í síðasta þætti (15. þætti) eru þræðirnir dregnir saman og stefin ná hæstu hæðum. Kristur Drottinn er lykillinn að skilningi Davíðssálma, eins og Drottinn útskýrði sjálfur þegar hann gekk á meðal manna. Jesús gekk inn í mannleg kjör og dó á krossi til þess að gefa öllum með sér að lifa í innilegu sambandi við Guð í dýrð hans.

15. þáttur Kristur í Davíðssálmum

December 22, 2021

Í síðasta þætti (15. þætti) eru þræðirnir dregnir saman og stefin ná hæstu hæðum. Kristur Drottinn er lykillinn að skilningi Davíðssálma, eins og Drottinn útskýrði sjálfur þegar hann gekk á meðal manna. Jesús gekk inn í mannleg kjör og dó á krossi til þess að gefa öllum með sér að lifa í innilegu sambandi við Guð í dýrð hans.

14. þáttur. Vandamál bænalífsins og þjáningi

December 15, 2021

Í 14. þætti er leitað svara við þeirri þverstæðu að ákalla góðan Guð í neyð sinni en mæta samtímis þjáningu og að lokum dauða. Davíðssálmur 73 svarar því eins og Biblían yfirleitt að Guð sjálfur svarar þrá okkar eftir lausn. Þjáningin er leið til lífs í dýrð Guðs eins og Jesús kenndi lærisveinum sínum og með fordæmi sínu.

13. þáttur Blessunaróskir og bölbænir

December 8, 2021

Í 13. þætti eru tekin upp vandasöm efni um að biðja illa, dóm og réttlæti. Fengist er við þann vanda sem hatursorð í Davíðssálmum og hernaðarmálfar vekur annars vegar og hins vegar boðorð Jesú að elska og biðja fyrir óvinum sínum. Skoðað er dæmi um fyrirbæn fyrir konunginum og spádómar um friðarkonunginn sem er Kristur.

12. þáttur. Íhugun og viskan í lögmáli Guðs

December 1, 2021

Í 12. þætti eru spekiljóð í Davíðssálmum skoðuð sem var bókmenntastefna í fornheiminum. Spakmæli eru dæmi um hana í nútímanum. Í sálmunum er reglufesta sköpunarinnar og lögmál Guðs vitið í tilverunni. Ljósið sem okkur er gefið er viska Guðs. Í fyllingu sinni birtist viska Guðs í Jesú eins og sálmar kirkjunnar boða.

10. þáttur. Fyrirbæn og þakklæti

November 17, 2021 • Jóhanna Sólrún Norðfjörð

Í 10. þætti er fjallað um fyrirbæn sem vaknar hjá biðjandi manni þegar hann áttar sig á eigin neyð og annarra. Þegar við reynum bænheyrslu brýst þakklætið fram og er rætt við Jóhönnu Norðfjörð forstöðumann Hvítasunnukirkjuna um fyrirbænaþjónustu og bænheyrslu.

11 þáttur. Játning trúar á Guði sem konungi

November 24, 2021 • Sr. Guðmundur Guðmundsson

Í 11. þætti er byrjað á öðrum hring í reynslu bænarinnar. Lofgjörðin og gleðin heldur áfram í játningu trúar að Drottinn er konungur. Það stef í tilbeiðslu Davíðssálma og sálmaarfi kirkjunnar er skoðað, t.d. í elsta sálmi norðurlanda: Heyr himna smiður.

9. þáttur. Bæn og angur. Viðtal við Sindra Geir Óskarsson

November 10, 2021

Í 9. þætti er bænin rannsökuð og skilgreind sem ákall til Guðs í neyð. Í innilegu samfélagi við Guð horfist biðjandi maður í augu við raunverulegar aðstæður sínar í traustaðartrausti. Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur ræðir um bæn og sálgæslu.

8. þáttur. Iðrun og angist. Viðtal við Margréti Eggertsdóttur

November 3, 2021

Í þessum 8. þætti eru iðrunarsálmarnir skoðaðir og sérstaklega 51. sálmur. Þegar biðjandi maður lítur inn á við frammi fyrir Guði sér hann sjálfan sig í nýju ljósi. Syndajátning, iðrun og bót er leið til bata fyrir fyrirgefningu Guðs. Margrét Eggertsdóttir sem leitt hefur tólf spora starf andlegt ferðalag kemur í viðtal og lýsir hvernig iðrunargangan hjálpar fólki.

7. þáttur. Lofgjörð og gleði. Gestur þáttarins er Anna Júlíana Þórólfsdóttir

October 27, 2021

Með 7. þætti byrjar nýr hluti. Fyrst er skoðað dæmi um lofgjörð, þá iðrun, síðan bæn og að lokum fyrirbæn og þakkargjörð. Gleðin er grunntilfinning trúarinnar. Anna Júlíana Þórólfsdóttir kemur í viðtal en hún er lofgjörðarleiðtogi Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri. Flutt verður lag eftir hana við stysta Davíðssálminn 117.

6. þáttur. Ljóðalist Hebrea og Þroskaferill Bænalífsins

October 20, 2021

Í þessum 6. þætti er ljóðlist Davíðssálma skoðuð út frá fyrsta sálminum. Innihald sálmanna er angur, bæn, þökk og lof sem eru stef bænlífsins og trúarþroskans. Innilegt samband við Guð vex og þroskast þegar Guð er ákallaður og tilbeðinn í ógnvænlegri veröld þannig læra þau sem treysta Drottni að þekkja hann, miskunnsaman og góðan Guð.

5 Þáttur: Flokkun sálmanna eftir stefum - 2. hluti

October 13, 2021

Í þessum þætti er haldið áfram að flokka sálmana eftir stefum og tilfinningum með dæmum um túlkun þeirra í tónlist. Játning trúar á Guði sem konungi, íhugun viskkunnar í lögmáli Guðs, blessunaróskir og bölbænir, vandamál bænarinnar og þjáningin, Kristur í Davíðssálmum.

4 þáttur Sálmar og bæn: Flokkun sálmanna eftir stefum - 1. hluti

October 6, 2021

Hvernig má flokka sálmana eftir stefum og tilfinningum trúarlífsins. Davíðsálmar hafa verið sungnir um víða veröld í kristninni og um aldir. Í þessum þætti er farið um heiminn og tekin dæmi um bænir og angur, lofgjörð og gleði, iðrun og angist, fyrirbæn og þakklæti.

3. þáttur Innihald, flokkun og form

September 29, 2021 • Sr. Guðmundur Guðmundsson

Davíðssálmar eru ljóðaform hjartans og bænalífsins. Þeir eru lofsöngvar, angurljóð og þakkagjörð. Þannig hafa þeir verið túlkaðir af tónskáldum og sálmaskáldin tjáð tilfnningar þeirra upp á nýtt. "Þú finnur sjálfan þig í þessum sálmum og kynnist sjálfum þér í sannleika, og Guði sjálfum og allri hans sköpun sömuleiðis" (Lúther).

2. Þáttur Innilegt bænalíf og stef Davíðssálma

September 22, 2021

Með nokkrum dæmum er gerð grein fyrir þeim sterku og djúpu trúartilfinningum sem bænir Jesú og Davíðssálmar geyma. Þjóðsöngurinn og sálmurinn Indælan, blíðan dæmi. Þessir sálmar m. a. tjá þennann trúararf sem sálmabækurnar geyma og lifir í söfnuðunum.

1
2