Lindin og Kristniboðssambandið stóðu fyrir ráðstefnu 10.-12. nóvember 2022. Efnið sem tekið var fyrir var Kristileg fjölmiðlun.
Kennarar komu frá MEDIAlliance í Bandaríkjunum og fengum við fræðandi og uppbyggilega kennslu um hvernig við getum betur nýtt okkur samfélagsmiðlana og beitt þeim með strategískum hætti við að koma fagnaðarerindinu á framfæri.
Í þessum þætti kynna Hafsteinn og Helga Vilborg efni ráðstefnunnar í stuttu máli, afraksturinn og hvernig framhaldinu verður háttað.