icon__search

Kynning á tólf spora starfinu

Margrét Eggertsdóttir

September 2, 2021

Þessi fyrsti þáttur er almenn kynning á sporavinnunni. Í næstu 12 þáttum eru svo sporin tekin fyrir, hvert um sig.

Að neðan eru sporin 12. Ritningarversin sem vísað er til á eftir hverju spori eru einnig tekin beint upp úr bókinni "12 sporin - andlegt ferðalag".

1. Við viðurkenndum vanmátt okkar vegna aðskilnaðar frá Guði og að okkur var orðið um megn að stjórna eigin lífi. (Rómv. 7:18)
2. Við fórum að trúa að máttur, okkur æðri, gæti gert okkur heil að nýju. (Filip. 2:13)
3. Við tókum þá ákvörðun að láta vilja okkar og líf lúta handleiðslu Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum. (Róm. 12:1)
4. Við gerðum óttalaust nákvæman siðferðislegan lista yfir skapgerðareinkenni okkar. (Harmlj. 3:40)
5. Við viðurkenndum afdráttarlaust fyrir Guði, sjálfum okkur og öðrum einstaklingi yfirsjónir okkar. (Jak. 5:16a)
6. Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla okkar skapgerðar-bresti. (Jak. 4:10)
7. Við báðum Guð í auðmýkt að fjarlægja brestina. (1. Jóh. 1:9)
8. Við gerðum lista yfir alla þá sem við höfðum skaðað og urðum fús til að bæta fyrir brot okkar. (Lúk. 6:31)
9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust, þar sem því var við komið, svo fremi sem það særði engan. (Matt. 5:23-24)
10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar okkur skjátlaðist, viðurkenndum við það undanbragðalaust. (1. Kor. 10:12)
11. Við leituðumst við, með bæn og hugleiðslu, að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum aðeins um þekkingu á því sem hann ætlar okkur og styrk til að framkvæma það. (Kol. 3:16a)
12. Við fundum að sá árangur sem náðist, með hjálp reynslusporanna, var andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi. (Gal. 6:1)

12 sporið

November 25, 2021 • Margrét Eggertsdóttir

11 sporið

November 18, 2021 • Margrét Eggertsdóttir

10 sporið

November 11, 2021 • Margrét Eggertsdóttir