icon__search

Jesú alls konar og Trans Jesú?

Mynd af Jesú veldur hneykslan

September 11, 2020 • Hafsteinn G. Einarsson

Pétur Markan, samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar, er hér í viðtali á Lindinni. Hann kom til að útskýra afstöðu Þjóðkirkjunnar til hinnar teiknuðu myndar af Jesú, sem mikið hefur verið rætt um á samskiptamiðlum síðustu daga og vakið hefur sterk viðbrögð. Á þessari litríku mynd er Jesú í líflegri sveiflu með brjóst og andlitsfarða. Ekki beint hefðbundin framsetning á Frelsaranum. Yfirskrift myndarinnar er "Verið velkomin í sunnudagaskólann í kirkjunni."

Margir hafa tjáð sig um myndina á samfélagsmiðlum og annars staðar og kommentakerfin hitnað all verulega. Sumir telja þetta ósmekklegt og færa rök fyrir því. Aðrir segja þetta ekki skipta neinu máli; Jésu sé allra og alls konar og af hverju ekki eins og myndin sýnir.

Hvað finnst þér?

More from Beint í Mark

Rauðu kvígurnar

September 22, 2022

Fyrir stuttu bárust þær fréttir frá Texas að bóndi nokkur hefði gefði rabbínum nokkrar rauðar kvígur. Og hvað skyldi vera svona merkilegt við það? Hefur gjöfin einhverja þýðingu fyrir Ísrael, endurbyggingu musterisins og tímatal lokatímanna? Við fáum biblíufræðinginn Snorra Óskarsson í heimsókn og hann ætlar að segja okkur meira um málið.

Vitnisburður Sólveigar Katrínar

August 19, 2022 • Sólveig Katrín Jónsdóttir

Í 27 ár var hún á leið uppljómunar og andlegar vakningar. Leið sem hún taldi vera hina réttu og sönnu. Í 27 ár var Sólveig Katrín Jónsdóttir á þessari braut. Lifði og hrærðist í þessum andlega heimi ásamt því að vera kennari í greininni. Kenndi sjamanisma og hélt gyðjuseremóníur. Efaðist ekki um að þetta allt væri frá Guði. En svo gerðist eitthvað í apríl 2021. Sólveig fékk snertingu frá Guði og eignaðist lifandi trú á almáttugan Guð. Sólveig kom til okkar og segir hér sögu sína í þessu viðtali. .

GO Movement

August 5, 2022 • Beat Baumann

Eitt merkasta trúboðsframtak í heiminum í dag er hreyfingin GO Movement. Alþjóðlegur stjórnandi hreyfingarinnar, Beat Baumann, var í heimsókn hér á landi í ágúst 2022 og tók þátt í morgunverðarfundi á vegum Lindarinnar. Hann sagði okkur magnaðar sögur um hvernig þúsundir manna hafa komist til lifandi trúar á Jesú Krist í gegnum verkefnið á heimsvísu. Hann hvatti okkur Íslendinga til að vera með og taka virkan þátt. Bauð fram aðstoð sína ásamt því að tengja okkur við aðila erlendis sem gætu komið okkur af stað. Beat settist við hljóðnemann og við tókum við hann stutt viðtal. Hugsjón GO Movement er að virkja kristna um heim allan til að bera reglulega vitni um trú sína – alveg þar til allir jarðarbúar hafa fengið tækifæri til að taka afstöðu til fagnaðarerindisins. Slagorðið er “Everyone can reach someone. Together we can reach the world." Meira um málið á http://gomovement.world Mikill áhugi er á að taka við keflinu hér á landi og nýta þennan slagkraft fyrir Ísland. Ef þú hefur áhuga á að vera með hafðu þá samband við Lindina í síma 567-1818 eða með tölvupósti á http://lindin@lindin.is